Norðan og Sunnan 6 hópurinn skellti sér í ferð til Lundúna eftir að tipparar (þar sem vinningshafar voru karlmenn mætti frekar stafa það „typparar“ kannski ...) unnu 13 rétta í fótboltagetraunum.
Gulli, Nonni og Gestur skelltu sér í mat hjá okkur hjónakornunum. Þeir félagar þurftu að troða í sig andabringum, nípum og kartöflum; risastór sjeffervarðhundur sat yfir þeim til að tryggja að klárað væri af diskunum. Þar var spjallað og sprellað og svo skelltu þremenningarnir sér niður í bæ aftur og fréttist síðast af hópnum að bragða á forréttum um ellefuleytið á virtum veitingastað í Lundúnaborg.
Eggert ætlaði að kíkja norður í sveit líka en lenti undir göróttum ílátum kvöldið áður og fékk læknisvottorð og gubbupokaleyfi fram á hádegi. Hann missti að sjálfsögðu af brandara um mann sem kúkar í rúmið og þar sem hann var fjarverandi var sögupersóna áðurnefndrar gamansögu að sjálfsögðu nafngreind sem „Eggert“ af fádæma þroska sem einkenndi samverustundina.
Á sunnudeginum stendur svo til að skella sér á fótboltaleik, enda má ekki minna gera þegar menn eru orðnir jafngetspakir og staðreyndir herma.
laugardagur, mars 11, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli