Þakka ykkur kærlega fyrir athugasemdirnar!
Það er sannarlega gaman að heyra skoðanir og brandara.
Sérstaklega var nú gaman að fá athugasemdir um tilkomu bolludagsins og nærliggjandi daga. Þar komu bæði lognar og sannar sögur. Atli ýkjubóndi kom með sögu um að bollurnar hjá grænlendingum væru frosnir snjóboltar með "gyllingu" og Sólrún minnist á flengingar í frjósemisskyni. Lesið endilega athugasemdir sem komið hafa.
Já, takk fyrir að smella á auglýsingarnar. Fyrir þá sem velta því fyrir sér, þá er þetta hluti af "google adsense". Ég sel þeim einfaldlega plássið og þeir eru með aðila sem kaupa birtingu hjá þeim. Ef þið smellið á eina auglýsingu, þá fæ ég einfaldlega greitt fyrir birtinguna. Það er bara smápeningur, það þarf ansi margar smellur til að verða ríkur, en þetta er tilraun og ég hef ekkert á móti því að hafa nokkra þúsundkalla eftir árið fyrir að gera ekki neitt.
föstudagur, mars 03, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli