Hér sit ég í vinnustofunni úti í garði með rjúkandi kaffibolla að þýða.
Ég er á tónlistarhimni! Ég var að gerast áskrifandi að Napster (hann er löglegur núna). Þetta er svipuð þjónusta og tonlist.is. Maður kaupir áskrift fyrir um 1500 krónur og fær aðgang að milljón lögum!
Ég er að hlusta á Nigel Kennedy núna, er búinn að bara í gegnum helling af fólki sem mér hefur lengi langað að hlusta á en ekki haft tíma eða tækifæri til.
Ýr og Davíð koma á laugardaginn og Kristinn er með afmælisveislu á sunnudaginn.
Kristinn var dreginn yfir í „Cubs“ úr „Beavers“ í skátunum (það er athöfn þar sem þeir eru dregnir á reipi), svo nú fer skátadæmið að byrja fyrir alvöru; þeir fá að fara í útilegu yfir helgi og svoleiðis, snara beljur og skjóta flækinga.
Gulli var að hafa samband á Skype til að segja mér að ég sé auglýstur sem gestasöngvari með Rokkabillýbandi Reykjavíkur ásamt Hreimi og Bjarna Ara á Players 8. apríl. Hlutirnir eru fljótir að gerast. Best að spyrja Tomma hvað ég á að syngja ;-)
Hér er auglýsingin hjá Promo.is
Jæja, áfram með smjörið, upp með fjörið, annars fæ ég í örið ... sem ég fékk í hnífabardaga í 'Nam.
Góðar stundir.
föstudagur, mars 24, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Kveldið, gott og blessað föstudags kveldið. Fjölskyldan í Geisla Þorláks hins helga er öll að róast eftir annasama viku. Börnin lögst og foreldrar í rólegri gírnum. Átakalaus kvöldmáltíð með brauði, ostum og ítalskri parma skinku ásamt príma ítölsu rauðvíni afstaðin og við bjóðum öllum góða nótt og ánægjulega helgi.
Sælir.
Kíkið á síðuna mína í tilefni dagsins.
http://atlikris.blogspot.com/
Skrifa ummæli