miðvikudagur, mars 08, 2006

Davíð og bakið

Hér er hellirigning.

Góðar og slæmar fréttir:
Bakið á mér læstist eftir þriggja daga bauk ofan í nýja kassanum utan um tölvuna mína. Ég skarta nú "flygilsvörtum" tölvukassa sem dregur úr hljóðmengun. Ég fór annars í nálastungu (acupuncture) í fyrsta skipti í gær. Ég læt ykkur vita hvernig það virkar fyrir mig. Ekki var það nú sárt, þannig að fólk ætti ekki að láta það aftra sér ef það er forvitið.

Góðu fréttirnar eru þær að Davíð fékk starf hjá EasyJet! Hann byrjar þjálfunina í næstu viku og verður farinn að fljúga eftir 2 mánuði! Hjartanlega til hamingju Davíð og Ýr!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk Þór, en það eru 2 mánuðir þangað til ég fer að fljúga, ekki 6 :) Ég er búinn með meirihlutann af þjálfunninni undanfarin ár, nú er það aðeins að læra öll smáatriði á þessari vél :-) Góðir hlutir gerast hratt!