
Jæja, dagur síðla settur.
Best að skella sér í fótboltaföt, snarla létt og renna í fótbolta.
Ég hef spilað fótbolta með þessum drengjum í nokkur ár núna; þetta er góður hópur. Mottóið er að maður þurfti að mæta í vinnu daginn eftir, svo menn eru ekki að klippa hvern annan niður.
Við hjúin höfum verið að fylgjast með viðbrögðum ákveðinna Múhameðstrúarmannahópa við skrýtlum af ýmsum toga. Þeir eru voðalega hörundssárir. Það er greinilegt að þeirra menning er ekki farin að venjast guðspjöllum í vestrænni menningu. Jesú hefur nú þurft að þola okkur marga glennuna, allt frá Stanley-naglabröndurum upp (eða niður) í söngleik um sig.
Verst þykir mér að sjá menn opinberlega hóta morðum og bera skilti sem segja "til fjandans með frelsi".
Ætli það sé ekki best að skella inn fleiri skrýtlum sama efnis.
Hvers vegna er verið að argast yfir þessu núna? Er þetta ekki bara tylliástæða til ofstækis eftir stríðið í Írak og fleira?
"Svo þú segir að spámaðurinn sé ofbeldisfullur í þessari skopteikningu. Best að afsanna það með því að beita smá ofbeldi." Ætli enginn þeirra átti sig á mótsögninni hér?
Lif í friði, en aldrei á skopskyns.
Þór
Engin ummæli:
Skrifa ummæli