mánudagur, febrúar 13, 2006

Fjölskylduferð!


Kristinn er í skólafríi og við fundum sætt kot með eldstæði í "The Peak Disctrict" sem er þjóðgarður um 2 tíma fyrir norðan okkur.

Við ætlum að vinna af okkur á fullu og svo verður farið í hálandagönguferðir.

Jibbí!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heyja, fann loksins síðuna aftur, gleymi alltaf .blogspot.com ! Er núna sjálfur kominn í skólafrí, eða ætti maður að setja gæsalappir utan um fríið; kennurunum tókst auðvitað að setja nógu asskoti mikið fyrir í fríinu þannig manni á alveg örugglega ekki að leiðast ;P.. núna er ég að gera 10 mínútna fyrirlestur um ÞÓR (ekki "þann mikla" heldur þrumuguðinn Þór ;D) og svo á eg eftir að gera 15 mínútna fyrirlestur í sögu um James Watt um helgina!.. Manni er allavega haldið við efnið hérna í lærða skólanum, svo mikið er víst.

En við mamma vorum að panta pizzu (Domino's) og ég fer núna eftir ca 10 mínútur og sækji (strákurinn var nebblega að fá bílprófið í fyrradag, ekkert smá sáttur ;D, núna sér mamma varla bílinn ;P)

Þetta fer að verða soldið langt (er að endurskrifa þetta, í fyrra skiptið ýtti ég bara tvisvar á preview og lokaði glugganum :S) þannig ég held ég segi þetta gott í bili en þar sem www.bretablogg.blogspot.com er núna komin í Favorites þá fáiði vonandi að sjá fleiri svona komment í framtíðinni :).. gaman að geta fylgst með ykkur!

PS. Ef þið lesið þetta þá væri frábært ef þið gætuð skilið e-mailið hans frænda míns eftir svo maður geti nú heilsað uppá strákinn ;). Skemmtið ykkur vel "The Peak Disctrict" og hafiði það sem best!
(Mamma biður að heilsa)

Kv. Þráinn græni!