laugardagur, febrúar 04, 2006

Djö... er kalt!


Það er ansi kalt þessa dagana.
Hér er ensk veðurharka í essinu sínu: Takið venjulegt, kalt febrúarveður, rétt um -2 gráður í mesta lagi, og bætið enskum raka saman við; hrærið.
Útkoman er kuldaboli með náþvala krumlu sem grípur uppundir mann ef ekki er klæðst eftir veðri.
Því er best að klæðast skynsamlega og bíta á jaxlinn.

Góðu fréttirnar eru að í næsta mánuði fer strax að vora, þannig að ekki er veturinn langur.

Engin ummæli: