Jæja, við komum heim seinnipartinn eftir skemmtilega ferð til hæðóttra sveita í "Peak District" í Derbyskíri. Við gistum í ljómandi fínu koti með lítilli kamínu, en mest vorum við á ferðinni um þessa skemmtilegu sveit. Þarna eru tún um allt með allar girðingar grjóthlaðnar. Og svo taka heiðar og hálsar við, kindur á beit og "grouse" (stórar rjúpur, eiginlega) ropa furðulega þegar þær fælast upp.
Við enduðum á að skoða þrjá risahella og ganga upp á heiði og finna flugvélarflak úr seinni heimsstyrjöldinni.
Hér koma svo nokkrar myndir.
laugardagur, febrúar 18, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli