fimmtudagur, júní 10, 2004

Það skal byggjast


Jæja. Ekki ætlar þetta að standast hjá verktakanum væna. Við áttum fund með honum og hann var fremur niðurlútur. En ekki er öll nótt úti enn. Hann lofar að vera iðinn við kolann. Mér sýnist að við verðum að mála viðbygginguna rétt áður en gestir koma. Ætli Gulli og Berglind endi ekki í málningarvinnu; nei, ég segi nú svona. Er lífið ekki alltaf svona, allt smellur á síðustu stundu. Annars endar ekki heimurinn. En gott væri að fá hurð á klósettið... Posted by Hello

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Maður verður að vera tilbúinn í slaginn og taka hverju sem er eða eins og nýkrýndi skátinn myndi segja: "Ávallt viðbúinn"!
GAUR