fimmtudagur, júní 10, 2004

Kristinn er orðinn skáti


Kristinn sór fyrsta skátaeiðinn í dag. Það var hátíðleg stund þar sem hann hafði lært utanbókar einkunnarorð skáta, „ávallt viðbúinn“, og fyrsta skátaeiðinn: „Ég lofa að gera mitt besta, vera góður og hjálpsamur og elska Guð.“
Það er ekkert minna! Mér fannst nú þetta með að elska Guð vera heimtufrekja, en ákvað að túlka það sem „að elska guð, í hvaða mynd sem hann birtist, eða hvaða trúarbrögð ég vel mér (ef einhver).“ Það getur nú ekki verið alsæmt að elska Guð. Betra en að elska Bakkus.
Þannig að hann fékk skátaklútinn sinn við formlega viðhöfn og fyrstu heiðursmerkin, sem eru saumuð á skátapeysuna hans. Og er hann ekki glæsilegur, drengurinn! Posted by Hello

Engin ummæli: