Nú er vikulangt miðannarfrí búið. Við fengum reyndar frí í gær fyrir Kristinn.
Greyið var veikur allt fríið, svo við náðum að færa ferðina til Alton Towers fram á sunnudag.
Við gistum þar á hótelinu og fórum í vatnagarðinn á staðnum. Þar voru rennibrautir og mikið um busl. Sérstaklega vakti athygli langa rennibrautin sem farið var í síðast. Sú var með köflum sem fóru upp í móti. Maður renndi sér á svona stórum björgunarhring og svo var kútnum ýtt upp í móti af einhverjum blöðkum í rennibrautinni. Var fólk misfljótt að átta sig á þessu. Mason, vinur Kristins hruflaði sig aðeins á baki út af þessu og Hugrún, á ferð með Kristni á tvöföldum kút, var rifin úr sundbuxunum. Kom þá fram víkingurinn í stúlku og náði hún með eindæma samhæfingu að klæða sig aftur í buxurnar áður en hún og Kristinn birtust út úr rennibrautarrörinu. Það sem gerði þessa tilburði enn hetjulegri, var sú staðreynd að góður hluti af brautinni var í myrkri.
Glói gisti eina nótt hjá hundaræktendunum og það gekk ljómandi vel. Saumarnir eftir uppskurðinn voru teknir á föstudaginn og gróa vel.
Það snjóaði í nótt og er í öllum fréttum. En þetta var nú bara rétt föl. Samt er smá von að hægt verði að byggja snjókarl í vikunni. Við bíðum og horfum í eftirvæntingu til himins...
þriðjudagur, febrúar 22, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli