
Það var verið að skera greyið upp. Það þurfti að laga naflastrengskviðslit og svo var annað eistað ekki sigið niður í kvið. Svo voru eistun tekin í leiðinni. Eiganda dreymdi að Glói kom til hans í draumi og kvað:
Áður voru mér undir
ávalar kúlur tvær
Vakur um vetrargrundir
vaktaði fleira en ær
En nú er minn tómur sekkur
nú syng ég "kastrató"
Um lendar mér leikur trekkur
liðugri er ég þó
Í lendasekknum kreppt þau vildu hvíla
En hímdi í kviðnum feimið þar
eitt sem kuldaskræfa var
Khansville Glói Breiðfjörð