miðvikudagur, október 03, 2007
Fyrsti skóladagur - First Day of School
Fyrsti skóladagur í dag, mjög gaman, gekk vel í öllu, nema krakkarnir eru aðeins byrjaðir á frönsku og búnir að læra slatta af orðum. Kristinn er sá síðasti sem fer úr í rútunni, svo leiðin er um 40 mín löng. Hann hitti þrjá stráka sem honum líkaði mjög vel við. Skólinn er skemmtilegur, gaman í frímínútum og hann virðist ekki vera á eftir, gekk meira að segja betur en mörgum í sumum fögum í dag, svo hann var mjög sáttur og þreyttur drengurinn.
ENGLISH: Kristinn had a fab day at school, played footie in PE and scored 2 goals, met 3 nice boys and did well in lessons. He is the last one off the bus in the afternoon after a 40 minute journey. So, tired and happy.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Frábært að þú sért byrjaður í skólanum Kristinn minn og mér finnst rosa gaman að fá að sjá skólabílinn sem þú ferð með. Gangi þér vel að læra frönskuna. Þú verður fljótur að ná hinum krökkunum þótt þau hafi byrjað aðeins á undan þér, þú ert svo klár og flottur strákur.
Skilaður kærri kveðju til mömmu og pabba frá Söndru
Skrifa ummæli