Enn hef ég ekki fundið myndavélina, svona er lífið. En það hefur verið fólk hér með myndavélar, ég fæ bara lánað hjá þeim. Nonni "breiði" og Sigrún voru hér hjá okkur og eru að fara í dag. Þau eru í Halifax núna að versla, flott verð hér.
Við erum að þýða sem fyrr, alveg geðveik lota búin að vera í gangi, veit ekki hvað er að gerast. Veðrið er búið að vera fínt, nokkrir rigningardagar en fleiri sólardagar. Við fundum æðislega litla strönd rétt hjá okkur þar sem hægt er að leigja kajaka og fleira fyrir slikk og róa um Bras d'Or vatnið. Við kíktum þar með Nonna og co og svo kom Magnús Ingi í heimsókn í einn dag og við frændurnir staðfestum "róðrargenið" í okkur þegar við tókum kanóa saman. Við smullum í liðinn og æfðum ýmsar aðferðir: Að snúa á punktinum og renna okkur upp að bryggjunni, að taka Kristinn í tog í mótvindi og síðast en ekki síst að láta Glóa stökkva úr bátnum og út í vatnið án þess að velta! Það er ekki að spyrja að Hólslitningunum. Eins gott að við vorum ekki hérna með Þorfinni karlsefni, þá hefði Kanada heitið Vínland, allavega þar sem var fært á kanóa!
Tommi og Berglind koma á morgun og svo Kristín á laugardaginn.
Bið að heilsa,
Þór
sunnudagur, júlí 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli