laugardagur, júní 02, 2007

Grasekkill ekki með ekka

Komiði sæl.

Það er helst í fréttum að karlkyn af þremur dýrategundum heldur til í húsi við Helmuts lane. Einn er grasekkill, Hugrún og Kristinn eru á Íslandi og pabbinn þurfti að passa dýrin ásamt fleiru.

Við biðjum fyrir ástarkveðjur til Íslands.

Annars væsir ekki um okkur fyrir utan söknuðinn. Veðrið hefur verið gott með einstaka skúradögum. Hitinn er að hækka jafnt og þétt.

Ég vakna á hverjum morgni við spegilslétta ána og kanínur á beit. Svo var fiskur að vaka í ánni þegar ég fór út á flóðinu. Ég hef reynt smá Toby spún en varð ekki var á hann. Maður verður að tala við spekúlantana og prufa næst beitu, held ég. Svo er hægt að kaupa svona gervibeitu í búðunum. Það eru gúmmíútgáfur af alls konar ormum, sporðdrekum og pöddum sem innihalda svo einhverja ferómóna sem eiga að gera fiskinn vitlausan. Það væri munur að fá hjólgraðan silung á hinn endann á línunni; en kærir maður sig um svoleiðis, ég bara spyr. Kannski best að prufa bara náttúrulegan makríl í staðinn, eða þá bara gullkorn, já það held ég.

Í anda Albert Einstein pakkaði ég myndavélinni niður í gáminn svo það er ekki mikið um myndatöku í augnablikinu. Hér nota ég tækifærið til að biðjast forláts á því.

Ef Kristinn les þetta, þá er ég búinn að finna mikið meira af kúk eftir stórt rándýr á veginum; það er greinilega á rápi á nóttunni á eftir einhverjum litlum dádýrum.

Allavega, húsið er fínt, veðrið er fínt, gámurinn kemur brátt heim að dyrum og við erum á fullu að koma okkur fyrir. En það er gott að vera kominn á Internetið; ég er með þessa fínu tengingu í gegnum gervihnött, svona er nú geimöldin og gervihnattaöldin. Það á vel við að Eiríkur Hauksson var okkar fulltrúi í Evróvisjón, því nú er sú öld sem Gleðibankinn nefnir í algleymingi.

Jæja, best að hætta þessu þrugli og reyna að sofna.

Góðar stundir,

Þór von Vínland

Engin ummæli: