sunnudagur, júní 25, 2006

Helgin - skátabúðir og England

Við vorum að hjálpa til í skátabúðum um helgina. Þetta var rosaleg vinna, heitt og rakt með rigningu að nóttu til og svo hasar allan liðlangan daginn við matargerð, leikjastjórnun og öllum sem fylgir. Svo var Kristinn í barnaafmæli með grillveislu fyrir fullorðna eftir á. Við hjúin horfðum á Englandsleikinn en vorum alveg búin með bensínið, svo við náðum í strákinn og þökkuðum fyrir okkur.

Helgin heppnaðist þó vel og var eitthvað rætt um manninn sem stjórnaði "Pirates of the Carribean" leikjastjöðinni; þótti Bretum hann hafa ansi gaman af að binda fyrir augun á krökkunum, leiða þau um þrautabrautina og sprauta á þau með vatnsbyssu. Eiginkona hans svaraði aðspurð að hann væri ennþá stórt barn.

Nú skal pöntuð pítsa og hlúð að aumum bökum og mýbitnum kroppum (þrátt fyrir mikla úðun með fæluefni).

Góðar stundir.

Dýrið og Fríða

Engin ummæli: