
Ingibjörg Sigurðardóttir, systir Hugrúnar, hélt ljómandi myndlistarsýningu í Stykkishólmi og við fjárfestum í þessum frábæru verkum. Það urðu svo miklar vangaveltur hvernig ætti að koma listinni úr landi. Úr varð að Beccy sýndi fram á ótrúlega kunnáttu sína með límbandsrúllu og pappa, með því að búa til tösku utan um verkin. Nú vorum við orðin ansi flott á því, með sérsniðna tösku og íslenska list sem flytja átti úr landi. Upphófust þá ýmsar vangaveltur og húmor því samfara. Ávallt var vísað til verkanna sem „The Ingibjörgs“. Ef einhver vandræði yrðu við að fá leyfi til að taka verkin sem handfarangur ætluðum við auðvitað að svara: „But don't you know, it's an 'Ingibjörg'?!“ á sama hátt og einhver segði verk vera Rembrandt eða Picasso.
Þegar við svo lentum í 8 tíma bið í flughöfninni var títt spurt: „Do you have the Ingibjörgs?“ til að tryggja að þau hefðu ekki fallið í hendur á ósvífnum meistaraþjófum eða fálkaeggjaræningjum.
Og nú prýða verkin nýju stofuna okkar og þegar gesti ber að garði segi ég hiklaust með stolti: „You know, it's an 'Ingibjörg'.“
"The Ingibjorgs"
1 ummæli:
Mikid er thetta skemmtilegt og liflegt verk!! Hun Ingibjørg a ymislegt i pokahorninu sem fær loksins ad njota sin. Eg ætla lika ad fjarfesta i Ingibjørgs og gott ad vita hvernig smygla eigi listaverkum ur landinu ad hætti Beccy.
Skrifa ummæli