föstudagur, október 21, 2005

Parket lagt í dag

Hæ,

Það er verið að klára veggfóðrið uppi. Niðri í sjónvarpsstofu komu menn að parketleggja í dag.
Svo koma þeir á morgun og klára frágang.

Eins og sjá má á myndunum hér að neðan er stofan að fá á sig nýjan blæ. Við fengum reyndar áfall þegar við sáum hvernig munstraða veggfóðrið lítur út þegar það er komið upp, var alltof þétt, en það bjargaðist með því að stoppa þá af í að setja það nema á veggina í kringum arinsvæðið og upp í horn í stiganum. Hin hliðin er svo veggfóður í sama lit en ekki með munstrinu.

Á mánudaginn koma þeir svo og pússa upp gólfið í viðbyggingunni.

Bless í bili.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú og iðnaðarmenn eruð sem sé bestu vinir ;-)
Ekki von á neinum bakreikningum núna, er það?

Þetta er að verða svolítið flott hjá ykkur. Nú fer að verða kominn tími á að heimsækja ykkur aftur og halda gott næturgeim. Treysti á að garðurinn sé í órækt og þarfnist áburðar frá Jóni ;-) Kv. Eggert.