mánudagur, júlí 04, 2005

Sumarannálingur eða var það -etta?

... sem sagt annáll í smækkaðri mynd. Fyrir þá sem ekki þekkja mig nægjanlega, þá er þetta aulahúmor minn. Ég er þekktur í sumum kunningjahópum sem konungur vondubrandaranna. Venjist því eða forðist mig.

Ég hef ekki verið nógu duglegur að setja myndir inn, svo hér kemur hellingur.
Við fengum fyrst Gulla í heimsókn, síðan komu Hörður og Magga í helgarferð til London og þess á milli var skátaferð á mjóbát (narrowboat) eftir skipaleiðunum gömlu.

Svo var kíkt til Davíðs í Oxford.

Það stendur enn til að fara í fallhlífastökk en ekki hefur verið nógu léttskýjað til þess.

Sigurður Líndal er svo væntanlegur um næstu helgi. Hann hefur verið búsettur hér eins og við, býr í vesturbæ Lundúna, ekki langt frá leiklistarskólanum okkar, Arts Educational.

Engin ummæli: