sunnudagur, maí 08, 2005

Þar skall hurð nærri hælum ... þjófsins

Um klukkan fjögur í nótt reyndi þjófur að laumast inn á heimilið okkar. Það hafði gleymst að læsa útihurðinni innkeyrslumegin og viðkomandi hlýtur að hafa gengið á öll hús í götunni.
Þjófurinn opnaði hurðina, steig innfyrir, sá risastóran sjefferhund koma hlaupandi á fullu blússi með augastað á djásnunum hans (svo maður færi í stílinn) og gleymdi þá allri varúð.

Hugrún var hálfvakandi og heyrði bara Glóa þvílíkt spóla eftir gólfinu og hurðina skella aftur.

Ég stökk niður þegar Glói byrjaði að gelta og ég hef aldrei heyrt hundinn urra áður, þetta ljós.

Eftir nákvæma athugun sást hvorki tangur né tetur af þjófsa, sjálfsagt hefur honum þótt kominn tími á te og skonsur eftir fremur hræðilega nótt við sinn starfa.

Það þarf ekki að fölyrða um að Glói er hetja dagsins í þessu húsi og við erum Guði þakklát fyrir að hafa hann og sleppa með svona viðvörun.

Engin ummæli: