Jæja, þá er sumarið endanlega búið að ákveða að mæta. Sólin virðist ákveðin að skína.
Það er annars nokkuð tíðindalítið. Þýðingar ganga vel, ég er að fara kl. 6 í fyrramálið niður til London til viðskiptavinar; maður reynir að sleppa við morgunumferðina með slíkum tímasetningum á brottför. Húsið okkar var nær sprungið í loft upp vegna mistaka þegar gashitari fyrir vatn og ofna var endurnýjaður. Þann dag vorum við á leið heim frá Kýpur og það vildi til að Davíð og Ýr voru í húsinu og slökktu á tækinu áður en allt fór í kaldakol. Við vissum samt ekki hvað við vorum hætt komin fyrr en skýrslur komu frá sérfræðingum. Það er verið að ganga frá þessu í tryggingum og líklega þarf að lögsækja píparann ásamt fleira tilstandi. Svona er lífið. Ég verð orðinn góður í að lögsækja fólk eftir þetta ...
Við erum byrjuð að dunda aftur í að mála og ganga frá í húsinu eftir framkvæmdir.
Helgin var viðburðarík. Við fórum með vinafólki að leika okkur á vatnaketti (jetski) sem var nógu kraftmikill til að draga ýmsan útbúnað á eftir sér, m.a. sjóskíði og þess háttar. Allir skemmtu sér konunglega í vatnasporti, sér í lagi börnin.
Svo var farið í skemmtigarð, rússíbana og klessubíla, í dag og endað á göngu niður við eitt vatnið í Milton Keynes.
Hér eru allir sofnaðir, best fyrir mig að skella mér líka í bólið, þarf að vakna snemma.
mánudagur, apríl 25, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli