föstudagur, mars 04, 2005

Heimsbókmenntadagur í skólanum



Allir krakkarnir máttu klæðast eins og sögufræg persóna. Kristinn ákvað að vera Leonardo da Vinci. Hann var í hvítri skyrtu með málningarslettum, litaspjald og möppu með teikningum og málverkum eftir snillinginn. Kristinn var í fyrsta skipti spenntur yfir að klæða sig upp; áður hefur það verið hálfgert bras. Dagurinn var að sögn sá skemmtilegasti sem hann hefur átt í skólanum og hann hlakkar mikið til á næsta ári.
Leonardo Posted by Hello

Engin ummæli: