sunnudagur, október 03, 2004

Sömu uppeldisaðferðir



Já, ég er alveg búinn að sjá þetta út. Það gilda sömu uppeldisaðferðir um börn og hunda; bara að geyma kvikindin inni í búri meðan maður horfir á boltann og sleppa þeim út þegar maður er búinn að þjálfa þau í að sækja bjór.

...nei, ég segi nú bara svona.

Sannleikurinn er sá að Kristni þykir upp á síðkastið ákaflega fyndið að leika við Glóa inni í búrinu hans. Það er þetta líka þvílíkt stuð. Lífið er áfram áhugavert...
Uppeldi Posted by Hello

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þeir virðast nú báðir braggast ágætlega, þrátt fyrir uppeldisaðferðirnar. Mér sýnist á öllu að Glói Breiðfjörð sé að taka fram úr hinum Breiðfjörð þegar kemur að vaxtarhraða en við spyrjum að leikslokum!
GAUR