... úr rúmi ég fer
byggingakarlinn
bitann inn ber
Ég þrái að sjá mitt, fá mitt
fara' um eigið hús mitt ber
Já, það verður munur að geta skundað á brókinni eftir kaffibolla án þess að þurfa að heilsa mönnum með skegg og hamra.
Helst í fréttum í morgun er að síðasti burðarbitinn í sólhýsið verður settur/smíðaður í dag.
Svo verða þaksperrur/bitar negldar á, og þá er hægt að leggja þakhellur, sem aftur þýðir að hægt verður að setja glugga og dyr í, sem AFTUR þýðir að húsið mitt verður FOKHELT!
... það verður gaman.
Best að taka myndir í dag og sýna ykkur.
Sjáumst.
fimmtudagur, ágúst 26, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli